Fjallalamb hefur nú sett upprunamerkingu á frosin,lauspökkuð læri og hryggi. Þetta er stórt skref sem fyrirtækið er að stíga í innleiðingu upprunamerkingar á afurðum. En stefnt er að því að koma merkingunni á sem flestar vörur þar sem hægt er að koma henni við. Fyrir þá sem ekki vita hvernig upprunamerkingin virkar þá fylgir miði með númeri innleggjenda með hverri einingu. Neytendur geta svo farið inn á www.fjallalamb.is smellt þar á upprunamerkingu og sett þar númerið inn. Þá sjá þeir mynd af býli innleggjenda ásamt upplýsingum um ábúendur.
Þessi stóri áfangi hjá Fjallalambi staðfestir ennfrekar gæði framleiðslu okkar ásamt því að tengja betur neytendann við framleiðendur.
Bændur sem leggja inn í Fjallalambi telja sig vera að framleiða það góða vöru að þeir þora að setja nafnið sitt á hana.
Þessa vöru er nú einungis hægt að fá í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.
Kveðja Björn Víkingur Björnsson


