Fréttir
01.07.10
Vel heppnuð kynningarferð.
Vel heppnuð...
Dagana 22-26 júní sl voru haldnir Fjallalambsdagar í Fjarðarkaupum.
Kynntar voru vörur frá Fjallalambi á hverjum degi. Nýjungar sem og gamlar góðar vörutegundir.
Á föstudeginum var m.a. kynning á upprunamerkingu lambakjötsins og grillkjötskynning.
Bændur úr héraði mættu á staðinn, grilluðu, spiluðu á harmoniku  fyrir kaupendur og kynntu upprunamerkinguna.

Þá var í tengslu við þessa daga, farin starfsmannaferð suður og var starfsfólk Fjallalambs við kynningar í Fjarðarkaupum á föstudeginum. Er það mál manna að mjög vel hafi tekist til við kynningar þessa daga.

Hér koma svo nokkrar myndir úr Fjarðarkaupum.

Jón í Leirhöfn og Fjóla á Gunnarsstöðum að grilla.     Jónbjörg kynningarkona að störfum.

Hildur í Leirhöfn að kynna vörur.                               Jóhannes á Gunnarsstöðum og Stefán á Leifsstöðum að kynna upprunamerkingu.

Alexander og Matthildur að kynna nýja vöru.            Sigurður spilaði á harmoniku við andyri.

Mikill áhugi var fyrir Upprunamerkingunni.

 

Starfsmenn gerður sér svo glaðann dag og var m.a. farið í keiluhöllina, adrenalíngarðinn og matur snæddur á Laugavatni.

Ég vil þakka öllum sem komu að þessari Fjallalambsviku starfsfólki,bændum og starfsfólki Fjarðarkaupa fyrir aðstoðina og liðlegheitin.

Kveðja Björn Víkingur Björnsson.