Sagan

 

Saga Fjallalambs

Fjallalamb hf var stofnað árið 1990 og er í eigu 130 hluthafa, sem flestir tengjast starfsemi fyrirtækisins á einn eða annan máta. Helstu eigendur eru bændur í Norður-Þingeyjarsýslu, samtök þeirra og sveitarfélög í Norður-Þingeyjarsýslu, ennfremur starfsmenn og aðrir einstaklingar. Allir innleggjendur eiga hlut í félaginu og mikil samstaða ríkir í héraði um starfsemi þess. Allt frá upphafi hefur það verið stefna félagsins að starfa sjálfstætt á markaðinum og óháð öðrum, en mynda hinsvegar viðskiptasambönd við aðrar afurðastöðvar til að tryggja hagkvæmni og nauðsynlega samvinnu innan greinarinnar í heild. Það er staðfastur vilji félagsmanna að skapa sérstöðu á markaðinum á grundvelli þeirra náttúrugæða sem Norður-Þingeyjarsýsla hefur uppá að bjóða, svo sem landgæði og einangrun frá algengum sauðfjársjúkdómum. Enginn mengandi iðnaður er stundaður í héraðinu og svæðið hefur ímynd hreinleika og óspilltrar náttúru. Kynbótaræktun á sér langa sögu á svæði Fjallalambs og síðustu ár hefur sú ræktun verið tæknivædd með nákvæmum mælingum sem hraðar bætingu holdfyllingar og kjötgæða. Sauðfjárrækt er aðalatvinnuvegur sveitafólks í Norður Þing, því er hún stunduð af alvöru og metnaði.

Yfirbygging Fjallalambs er lítil og því er auðvelt að sveigja þjónustuna að þörfum viðskiptavina. Styrkleiki félagsins á markaðinum liggur ekki síst í þessu og tengsl bænda við neytendur er nánari en í stærri fyrirtækjum í þessari starfsemi.

Í grófum dráttum skiptist starfsemi Fjallalambs í sauðfjársláturhús, sem eingöngu starfar á haustin, og hinsvegar í kjötvinnslu sem starfar stöðugt allt árið. Starfsemin fer öll fram á sama stað og skarast vinnusvæði þessara deilda mikið.

Hlutverk og framtíðarsýn Fjallalambs hf.

Tilgangur:

Tilgangur félagsins er slátrun sauðfjár þeirra bænda sem að félaginu standa og vinnsla og sala búfjárafurða á sem hagstæðastan hátt undir eigin vörumerki

Hlutverk:

7 meginhlutverk Fjallalambs er eftirfarandi:

1) Að sinna þörfum bænda sem best sem afurðastöð fyrir sauðfé.

2) Að skapa sem mest verðmæti úr afurðunum.

3) Að selja þá góðu ímynd sem héraðið hefur uppá að bjóða vegna hreinleika náttúrunnar og landgæða til sauðfjárframleiðslu. Jafnframt nýta í markaðsstarfi þá miklu kynbótaræktun og þekkingu sem bændur búa yfir.

4) Að vera leiðandi í gæðavottun íslenskra sauðfjárafurða,

5) Að gæta hagkvæmni í rekstri og forðast taprekstur.

6) Að byggja upp og viðhalda eignum félagsins þannig að þær úreldist ekki.

7) Að skapa með starfsemi sinni atvinnutækifæri í héraði.

Framtíðarsýn og markmið:

Slagorð fyrirtækisins er:

“Fjallalamb – Norður-Þingeyskar náttúruafurðir”

Í því endurspeglast sú staðreynd að félagið starfar á svæði þar sem íslensk náttúra er hvað óspilltust og hráefnið er upprunnið frá frjósömum heiðarlöndum héraðsins.

Fjallalamb er fremur lítið fyrirtæki miðað við önnur sambærileg í þessum geira atvinnulífsins. Það er yfirlýst stefna félagsins að starfa sjálfstætt og nýta sér þá sérstöðu sem félagið hefur frá náttúrunnar hendi. Vegna þessarra náttúrukosta, verkþekkingar og vegna smæðar sinnar á það möguleika á að sinna séróskum kröfuharðra neytenda, viðskiptavina sem meta gæði og góðan uppruna ofar lágu verði. Þannig hyggst félagið skapa sér sérstöðu á markaðinum.