Bændur

 

Fjallalambi 16.ágúst 2010
 
Ágætu innleggjendur.
Ákveðið er að hefja slátrun þriðjudaginn 14 september með 3-4 frjálsum dögum eftir því hver ásóknin í þá verður. Eftir það hefst hefðbundin áætlun. 
Frekari upplýsingar varðandi slátrun og sláturdaga verða sendar út með slátufjáráætlun.
 Ég hvet  þá bændur sem enn eiga ósagað kjöt,  í eigin birgðum,  að taka það heim fyrir  4. september. 
Sláturfjárloforð er nú hægt að fylla út á heimasíðunni okkar. www.fjallalamb.is og smellið síðan  á sláturfjárloforð. Athugið að neðan við svæðið sem þið fyllið út er öryggis-talnaruna sem þið verðið að setja inn. Þetta er gert til þess að sendingin sé ekki skilgreind sem ruslpóstur til mín. Þeir sem hafa ekki aðgang að tölvu geta hringt í okkur í síma 4652140 og gefið upp sláturtölu.
Sláturfjárloforð ásamt óskum varðandi slátrun  þarf ég að vera búinn að fá fyrir föstudaginn 20 ágúst. 
     Afurðaverð
Í ljósi markaðsaðstæðna og afkomu afurðastöðva almennt á árinu 2009 er því miður enginn grundvöllur fyrir hækkun á afurðaverði til bænda.
Verðskrá Fjallalambs er nánast óbreytt frá fyrra ári að því undanskyldu  að 35 kr/kg sem hafa verið greiddar til allra sláturleyfishafa í formi vaxta og geymslugjalda greiðast nú beint til framleiðenda. Þessar greiðslur fara því ekki lengur í gegnum Fjallalamb. Þetta veldur því að verðtaflan okkar lækkar sem þessu nemur.  Athugið að þessar 35 kr/kg. mun nú framleiðandinn fá á öll slátruð kg. Lömb-fullorðið ásamt heimtöku.
Sláturkostnaður hækkar um 5% frá því í fyrra að viðbættum þessum 35kr/kg sem greitt verður beint til bónda.
Sláturkostnaður verður eftirfarandi. Eigin birgðir upp að 240kg. 184 kr/kg. Eigin birgðir umframm 240 kg. 205kr/kg, Fjallalambsbirgðir 162 kr/kg. Sláturkostnaður fyrir fullorðið verður 124 kr/kg.
Stjórn Fjallalambs ákvað að taka ekki þessar 35kr/kg af verði ærkjöts og þýðir það t.d. 20% hækkun á FU3 til framleiðenda.  
Fjallalamb greiðir 25 kr/kg   álag í viku 37 og 10 kr/kg í viku 38. Eftir það gildir útgefin verðskrá.
Athugið að verðskrá Fjallalambs lækkar ekki eftir viku 39. Margir sláturleyfishafar birta verðskrá sína eftir vikum þar sem verðið er hæst í fyrstu viku og fer síðan lækkandi eftir því sem líður á sláturtíð.
70% af innleggi verður greitt á fyrsta föstudegi eftir innlegsviku.
Lokagreiðsla (30%) verður greidd fyrir áramót.
 
 
 
 
 
 
 
 
                    
 
 
 
 
 
                   Verðskrá Fjallalambs haustið 2010.
                                 (Búið er að draga frá 35kr/kg)
 
 
1
2
3
3+
4
5
E
442
442
436
383
277
248
U
437
437
431
378
272
243
R
405
420
397
335
247
228
O
340
391
340
316
228
214
P
306
306
306
296
214
200
 
 
 
 
 
 
 
VR
 
340
 
259
 
VP
269
 
 
 
 
 
FU
 
 
169
 
 
 
FR
 
 
85
 
47
 
FP
 
 
 
 
 
 
Sláturkostnaður.
 
 
 
 
 
 
Fjallalambs birgðir.
 
162 kr.
pr.kg
Eigin birgðir,lömb  upp að 240 kg. heimtekið...........................
184 kr.
pr.kg
 
Eigin birgðir, lömb yfir 240 kg. heimtekið.
205 kr.
Pr.kg
Eigin birgðir,Veturg / fullorðið. ...........................
124 kr.
pr.kg.
 
 
                                    Birt með fyrirvara um prentvillur.
                                    Kveðja
                                   Björn Víkingur Björnsson

Ágætu innleggjendur.

     Nú er sauðburði að megninu til lokið og tala sláturfjár liggur vonandi fyrir. Mig langar að biðja ykkur að senda okkur þær tölur á blaði sem fylgir hér með eða í tölvupósti á Fjallalamb@fjallalamb.is Einnig getið þið bara hringt til okkar 4652140 og sagt okkur tölurnar.
     Stefnt er að því að hefja slátrun þann 9. eða 10. September með 2-3.  frjálsum dögum eftir því hver eftirspurn í þessa daga verður. Mjög mikilvægt er, ef bændur panta slátrun á þessum dögum, að þær tölur standist. Við þurfum að vita tölur í frjálsa daga fyrir 15.júlí. Fyllt verður á þessa daga í sömu röð og pantað er. Fjallalamb greiðir  20 kr/kg  Í álag í viku 37. Niðurjöfnun verður með hefðbundnum hætti . Ef einhverjir bændur hafa sérstakar óskir um sláturtíma, eru þeir beðnir um að láta þær fylgja sláturfjártölu og munum við reyna að verða við því.
     Ég vil hvetja þá bændur sem eiga kjöt utan hólfa í bæjargeymslu að koma því í hólf eða taka heim. Á yfirlitinu sem fylgir er miði sem sýnir fjölda kassa sem eru utan hólfa í bæjargeymslu. Við munum senda það kjöt sem ekki verður búið að gera grein fyrir og er utan hólfa til vikomandi eiganda þann 15.júlí á kostnað eiganda. Einnig er mikið eftir af ósöguðum skrokkum í eiginbirgðum sem ég vil hvetja menn til að láta saga fyrir mánaðarmót júlí-ágúst. Það er mjög mikilvægt að við náum að tæma það bændakjöt út fyrir sláturtíð.
Reikningar.
 Eins og þið hafið kannski heyrt þá ákvað stjórn að greiða uppbót á útflutningsverð 44.kr. á kg. 306 krónur hafa þegar verið greiddar  og verður þá heildargreiðslan  350 krónur til bænda á útflutt kg. Þessi uppbót á útflutninginn verður reikningsfærð á dags. 1.júlí. Sendi ykkur hér yfirlit og reikninga frá 1.maí til 30.júní 2009.
Til fróðleiks.
Eftirfarandi sumarálagsgreiðslur eru í gildi vegna slátrunar dilka utan álagstíma 2009.

Vika 33 – kr. 1.200 pr. dilk
Vika 34 – kr. 900 pr. dilk
Vika 35 – kr. 600 pr. dilk
Vika 36 – kr. 300 pr. Dilk
Kveðja

Björn Víkingur Björnsson

Bréf til bænda
                                                                                    Kópaskeri 21.Ágúst 2008
Fyrst þetta...
Nú er að líða að sláturtíð og undirbúningur hér innanhús í hámarki. Margir vanir menn verða hér á húsinu í haust og mun það leiða  til betri verkunar.
 
Til umhugsunar fyrir slátrun.
Bílstjórar sláturfjárflutningabíla verða með blöð svipuð og í fyrra þar sem þeir skrá niður fjölda sláturfjár sem fer á bílinn ásamt óskum um heimtöku (fitu og matsflokk ásamt fjallalambsbirgðum og eigin birgðum). Forsenda þess að bóndi fái nákvæmlega það sem að hann vill í heimtöku er að þær upplýsingar liggi fyrir í byrjun sláturdags. Mjög mikilvægt er að þetta sé samviskusamlega talið og uppgefið bæði af bónda og bílstjóra. Bílstjórar láta bændur vita hvenær féið verður sótt. Við leggjum mikla áherslu á það að bændur reki inn á morgni þess dags sem flutt er svo ekki komi til tafa við afhendingu.
Við höfum verið að endurbyggja hluta af réttinni og verða nokkarar breytingar þar.
Stigi verður kominn sunnan á húsi sem ætlaður er innleggjendum. Þar er gengið beint inn að tölvu. Við verðum með 2 starfsmenn í rétt þannig að þeir munu sjá um að reka inn í rennuna og hringinn. Ekki er gert ráð fyrir því að bóndi fari inn í réttina nema í undantekningartilfellum. Þarna erum við að koma í veg fyrir mengun úr rétt og heim til bónda.
Slátursala
Slátursala hefst hér 22.september og stendur til 6 október. Ekki er leyfilegt að fara með óverkaða hausa og lappir út úr húsi. Þeir bændur sem vilja innmat úr sínum dilkum verða að láta okkur vita af því a.m.k. daginn fyrir slátrun með því að senda tölvupóst á fjallalamb@fjallalamb.is  eða hringja í 4652140.
 
Heimtaka
Heimtaka bænda verður með svipuðum hætti og í fyrra þ,e, skrokkar í eigin birgðum eru grófhlutaðir strax eftir frystingu. 
 
Annað.
Ekki er enn vitað með vissu hversu margt fé við fáum vestan Jökulsár á Fjöllum  en þeim lömbum  munum við slátra á milli umferða hjá okkur og gæti því orðið lengri tími í seinni slátrun en áður.
Greiðsla til bænda.
Greitt verður fyrir 75% af innlögðu kjöti  þann 25 október og 25% þann 15 desember. Ekki hefur verið endanlega ákveðið með greiðslur til bænda vegna útflutnings, en reiknað er með að það verði með svipuðum hætti og haustið 2007.
 
Með von um gott samstarf.
Björn Víkingur Björnsson

20.08.2008

 Afurðaverð fyrir haustið 2008.

Stjórn Fjallalambs hf  hefur ákveðið að hækka verð til bænda að lágmarki um 18% frá verðskrá 2007. Þessi verðskrá er gefin út með fyrirvara um frekari hækkun.

Markmið stjórnar félagsins er að geta greitt bændum sem næst viðmiðunarverði Landsambands Sauðfjárbænda fyrir árið 2008.

Greiðsla fyrir gærur og slátur verðum með sama hætti og verið hefur þ.e. slátur er látið mæta flutningskostnaði en greitt verður fyrir gærur það verð sem næst að frádregnum kostnaði.

Fyrir útflutning verður greitt að lágmarki 306 krónur.

Greiðslur til bænda verða með svipuðum hætti og áður.

Verðskrá Fjallalambs haustið 2008

 1233+45
E476,72477,00471,00417,72311,52283,00
U472,00472,00466,00413,00306,80278,00
R440,00455,00426,00370,52282,02263,00
O375,24426,00375,00351,64263,14249,00
P341,00341,00341,00331,58248,98235,00
       
VR  375,00 294,00 
VP304,00     
FU  169,00   
FR  85,00 47,00 
FP      
Slátrun á heimteknu      
Fjallalambs-birgðir ...........................121,00pr.kg 
Eigin birgðir,lömb ...........................142,00pr.kg 
Eigin birgðir,Veturg / fullorðið ...........................2.300,00pr.kg 

 

 

Bréf til bænda
                                                                                                    Kópaskeri 28.júlí 2008
 
 
Heilir og sælir bændur.
Við höfum ákveðið að hefja sláturtíð þann 10. September. 10 og 11 september verða frjálsir dagar og fyrsti dagur í áætlun er þá föstudagurinn 12 september. Einnig munum við bjóða upp á 2 slátranir í ágúst, þann 21 og 28 ágúst,ef  nægilegur fjöldi næst.
 
 Ég vil biðja bændur að hringja til okkar í síma 4652140 og gefa upp sláturfjártölur eigi síðar en 8.ágúst.
 
Þeir  bændur sem enn eiga kjöt utan frystihólfa (þar með talið kjöt í eigin birgðum) þurfa að hreinsa það upp og koma því annaðhvort í frystihólf eða heim fyrir 10 ágúst.
Eftir það verður reiknað geymslugjald.
 
 
Fréttir
Eins og flestir bændur vita  þá er Markaðsráð kindakjöts búið að koma með tillögu að 28% útflutningshlutfalli yfir alla slátrun í haust.
Markaðsráð er búið að ákveða sumarálagsgreiðslur sem eru eftirfarandi:
  • Vikur 23-32     1.100 kr. Á hvern dilk.
  • Vika 33           800 kr.   Á hvern dilk.
  • Vika 34           500 kr.    Á hvern dilk.
  • Vika 35           200 kr.    Á hvern dilk.
  • Greiðslur falla svo niður í viku 36
Tillagan er send til Bændasamtaka Íslands og landbúnaðarráðherra til umfjöllunar.
 
Sala á kjöti gengur vel, heildarsala er  minni miðað við sama tíma árið 2007 en sala á grilli og krydduðum vörum hjá okkur hefur aukist.
 
Bestu kveðjur
 
 
 

Björn Víkingur Björnsson

 

 

 

 

 
 
Bréf til bænda.                                                                                  Kópaskeri 3.mars 2008
 
 
 
 
Heilir og sælir bændur.
Slátrun.
Fjallalamb hefur ákveðið að slátra þann 10 apríl næstkomandi. Geta bændur þá sent lömb ásamt geldfé til slátrunar. Ekki þarf að gelda hrútlömb  þar sem þeir teljast lömb á þessum tíma. Við vitum ekki hvað þetta verður margt en hugsanlega þurfum við að skipta þessu niður á 2 daga. Vinsamlegast hringið í okkur fyrir 20 mars og gefið okkur magntölur.
 
Annað.
Ég vil benda fólki á það að verið er að hanna nýja og glæsilega heimasíðu fyrir Fjallalamb sem verður send út á vefinn upp úr miðjum mars.   Þar stefni ég á það að vera með myndir af öllum jörðum innleggjenda Fjallalambs . Vil ég því biðja bændur ef þeir eiga góða mynd að senda mér hana í tölvupósti fjallalamb@fjallalamb.is eða í venjulegum bréfpósti.
Við viljum biðja þá bændur sem eiga kjöt utan frystihólfa að koma við fyrsta hentugleika og setja í hólf.
 
Kveðja
Björn Víkingur Björnsson
               
 
 
 
 
 
Bréf til bænda
                                                                                    Kópaskeri 20. Nóvember.2007
 
 
 
Heilir og sælir bændur.
 
Slátrun.
Ég hef heyrt að nokkrir bændur séu með lömb sem að þeir vilja koma í sláturhús.
Ég vil biðja þá bændur að hringja í okkur og gefa okkur tölur fyrir 23 nóvember.
Við reiknum með að slátra þann 4 desember. Ekki er hægt að leggja inn hrútlömb en bændum er heimilt að slátra þeim og taka þau heim.
 
 
Reikningar.
 
Í umslaginu eru afurðareikningar og reikningar fyrir flutningi og sláturkostnaði á heimteknu..
Innmatur kemur upp á móti flutningi á dilkum en ekki fullorðnu.
Neðst á afurðarreikningunum eru dagsetningar á greiðslu til ykkar.
Einnig fylgir afurðarreikningur fyrir útflutningi en hann verður greiddur inn á reikninga ykkar þann 15.desember.
 
Annað.
Varðandi tölur úr afurðaskrá okkar s.s. verðmæti dilka,þyngstu lömbin og gerðarmat þá eru þær tölur eingöngu úr innlögðu kjöti.
 
Bestu kveðjur.
 
Björn Víkingur Björnsson
 
 
 

 

 

15.08.2007

Verð til bænda

Stjórn Fjallalambs ákvað á fundi sínum 10/8 eftirfarandi verðskrá til bænda.

Verðskráin hækkar um 6,5% nema að E flokkur hækkar 4 kr.betur.

Holdfylling/fita1233+45
E404404399354264240
U400400395350260236
R373386361314239223
O318361318298223211
P289289289281211199
       
VR  318 249  
VP258     
FU  143   
FR  72   
FP      
Slátrun á heimteknu      
Fjallalambs-birgðir ...........................
103
pr.kg 
Eigin birgðir, lömb ............................
120
pr.kg 
Eigin birgðir, veturg/fullorðið ...............
1955
pr.stk 
       

Greitt verður fyrir útflutning 237 kr.

Stjórn áskilur sér rétt að breyta þessari verðskrá ef forsendur breytast.

Innmatur kemur upp á móti flutningi eins og síðasta ár.

 
 

  Afurðastöð
Hlutd. í slátr.
E
U
R
O
P
Sláturf.Suðurl., Selfossi
18,0%
1,2%
19,0%
63,7%
15,2%
0,9%
KVH Hvammstanga
14,3%
1,8%
33,8%
56,5%
7,2%
0,7%
Söluf. A-Hún. Blönduósi
17,5%
2,6%
19,9%
62,4%
14,8%
0,4%
KS,Sauðárkróki
19,6%
0,9%
24,6%
64,7%
9,3%
0,4%
Norðlenska, Húsavík
14,2%
1,5%
21,3%
64,3%
12,4%
0,5%
Fjallalamb, Kópaskeri
5,5%
4,4%
41,0%
47,9%
6,5%
0,1%
Slf.Vopnfirðinga
5,1%
0,8%
19,3%
67,3%
12,6%
0,1%
Norðlenska, Höfn
5,9%
1,2%
18,8%
65,3%
14,1%
0,5%
Meðaltal allt landið
100,0%
1,67%
23,91%
62,14%
11,76%
0,52%